|
|
05.05.2006 15:25:15 / heida86
»
30.04.2006 20:44:05 / heida86
Já ég veit að ég er alltaf jafnöflug í
þessu bloggi. Einhvern veginn þá er maður alltaf á leiðinni
að blogga en svo bara einhvern veginn þá "gleymir maður því".
En það er bara búið að vera mjög rólegt þessa helgina,
hún er nú reyndar ekki búin ennþá, alveg heill frídagur eftir
og ég hef ekki hugmynd um hvað ég geri. En í gær þá svaf ég
alveg ótrúlega mikið og svo þreif ég og lagaði til, svo
horfði ég á tv og svo fórum ég og einar í mat til önnu og hún
var að gera pizzu. Svo vorum við þar bara að spjalla og sona.
Svo komum við bara heim og horfðum á tv. Svo í dag þá ákvað
ég nú að kíkja aðeins í búðir og fór og verslaði smá sem var
bara ágætt. Svo kom ég heim og ákvað að búa til ís því ég
átti rjóma sem var að verða útrunnin og fyrst ég var nú
byrjuð að brasa e-ð þarna í eldhúsinu þá ákvað ég að baka
líka brauð. Svo er ég núna bara að horfa á tv. Svo er bara
kominn maí á morgun, þetta er alveg ótrúlega fljótt að líða,
það eru bara 20 dagar þangað til ég fer til London og 26
dagar þangað til ég útskrifast Jæja ég er að hugsa um að
halda áfram að horfa á Acording to Jim
»
18.04.2006 10:29:00 / heida86
Páskafríið
bara búið og ég mætt aftur við skrifborðið hérna á Laugavegi
77. Þetta er búið að vera fínt frí þó mér hafi verið farið að
leiðast pínu sona í restina. En ég fór norður á
miðvikudagskvöldið og á fimmtudaginn kíkti ég svo á krókinn
með pabba og hitti þar nokkra. Svo á föstudaginn þá fórum ég,
raggi og fleiri og leigðum okkur sleða og fórum upp um öll
fjöll sem við gátum þarna í kringum leiguna, það var mjög
gaman, þó mæli ég reyndar ekki með því að fólk sitji lengi
aftan á, það er ekki þægilegt. En svo var ég að vinna um
kvöldið í miðgarði á balli þar, þurfti svo að þrífa eftir
ballið þannig að ég var ekki komin heim fyrr en sona um hálf
7. Svaf þá í smá stund og fór svo á akureyri og hitti þar
frænkur mínar, frændur og ömmu, það var mjög gaman aðeins að
kíkja á þau. Svo kíkti sara til mín um kvöldið. Svo svaf ég
nú til sona hálf 2 á sunnudaginn, fór þá í sund með söru og
svo á sunnudagskvöldið þá leiddist mér svo að ég fór að lita
Nennti samt ekki neitt út, langaði reyndar að fara bara og
djamma á akureyri en það var ekki alveg að ganga upp. En svo
fór ég bara að horfa á video og fór ekki að sofa fyrr en um
hálf 5. Svo í gær þá fór ég út með pabba að skipta um dekk á
bílnum mínum, ég reyndar mátti lítið hjálpa til þannig að ég
stóð bara þarna og gerði ekki neitt, svo fór ég inn og fór að
strauja og ganga frá þvotti, svo fór ég bara suður sona um
sexleytið, fór úr snjónum og í sólina. En í seinustu viku
pantaði ég mér ferð til London, það var e-ð tilboð, fékk flug
fram og til baka á 10 þús, ekki slæmt, svo er bara að panta
sér hótel á eftir En jæja ætla að fara að finna mér e-ð að
gera
»
05.04.2006 10:43:04 / heida86
Eftir viku og 6 og hálfan klukkutíma
verð ég komin í páskafrí. Ég var að skoða dagatalið áðan og
þessi mánuður verður alveg pottþétt fljótur að líða, núna eru
tveir dagar í helgina, svo er unnið 3 daga í næstu viku, 3
daga í þar næstu viku og svo 5 vikuna þar á eftir og svo er
kominn maí Ég er engan veginn að átta mig á þessu, það
styttist óðum í að maður útskrifist og sona en ég fór nú að
hugsa um það í gær að maður ætti nú kannski að fara að láta
mæla fyrir stúdentahúfunni, ég er að hugsa um að fara í það í
hádeginu. Svo eru Raggi og mamma að koma á morgun, mamma
verður líklega fram á sunnudag og Raggi fram á næsta
miðvikudag þannig að það verður bara fullt af fólki í
heimsókn næstu daga sem er bara gaman, soldið skrítið samt
þar sem maður er nú ekki vanur að hafa mikið af fólki heima.
En svo ætla ég að fara norður næsta miðvikudag og verð
líklega fram á mánudag. Svo eru nú úrslitin í Idolinu á
föstudaginn, kannski maður reyni að sjá þau, svo er
söngvakeppni framhaldsskólanna á laugardaginn. Annars er bara
búið að vera frekar rólegt hjá mér, ég kom við í kringlunni á
mánudaginn og pantaði mér adsl, svo þurfti ég aftur að koma
við þar í gær þannig að ég er orðin daglegur gestur þar. En
ég ætla nú reyndar ekki að fara þangað aftur í dag. Annars er
ég bara að bíða núna eftir að einhver komi og lagi prentarann
hjá mér, þegar ég kveiki á honum koma agaleg hljóð og læti
þannig að ég slekk bara á honum aftur og bíð bara eftir
að einhver komi og lagi hann Rétt áðan var blindbylur úti
og núna er komin sól en ég held að páskahretið sé að koma og
að það verði allt á kafi í snjó um páskana. En neinei við
skulum vona það besta, það væri nú ekki gaman að vera
veðurtepptur einhvers staðar. En jæja ég er að hugsa um
að fara að fylla á vatnsbrúsann minn og e-ð
»
28.03.2006 16:30:10 / heida86
Betra er
seint en aldrei. Um daginn var ég nú búin að skrifa slatta en
svo bara gleymdi ég að ég væri að því og svo þegar ég var
búin að vinna þá bara slökkti ég á tölvunni án þess að klára
þetta en ég ætla að gera aðra tilraun núna, er búin að
vera með þetta opið í sona klukkutíma og það hefur alltaf e-ð
verið að trufla mig en núna hef ég 27 mín til að klára
þetta, hlýt að ná að skrifa e-ð smá. En á föstudaginn skellti
ég mér í mat og þegar ég kom aftur niður þá var ég búin að
kaupa mér queen size rúm, maður er ekki lengi að þessu. Ég
fór og reddaði sendibíl til að koma með rúmið og þegar ég kom
svo heim úr vinnunni þá skaust ég í ikea til að kaupa lak á
rúmið og svo fór ég heim og fór að drösla gamla rúminu út úr
herberginu og skrúfa af því lappirnar. Svo fór ég með það
inní geymslu en þar sem þetta er nú ekkert stór geymsla þá
var þetta smá bras að koma þessu fyrir en mér tókst þetta nú
á endanum. Svo kom sendibíllinn með rúmið sem var ekkert smá
mikið pakkað inn í einhvern pappa og ég fór nú að byrja á að
rífa hann af og hann tók nú bara næstum allt plássið inní
stofu og frammí holi. En svo þegar ég ætlaði nú að fara að
skella blessuðu rúminu saman þá bara áttaði ég mig engan
veginn á því hvernig þetta ætti að vera og var búin að velta
þessu mikið fyrir mér og gekk lítið. Þá fékk ég aðstoð og um
leið og einhver annar fór að skoða þetta þá fattaði ég
hvernig þetta átti allt saman að vera þannig að þetta tókst
allt á endanum. En svo kíkti ég í bíó á föstudagskvöldið
eftir að ég var búin að koma þessu rúmi saman. Svo á
laugardaginn þá tók ég íbúðina í gegn og fór svo aðeins að
útrétta, það var farið að vanta slatta í ísskápinn. Svo fór
ég nú bara heim. Þegar fólk spyr mig hvort ég hafi séð Lord
of the rings og ég segi nei þá verður fólk mjög hneykslað og
því ákvað ég að reyna nú að bæta e-ð úr þessu og horfði á
fyrstu myndina og byrjaði á þeirri næstu, reyndar sofnaði
mjög fljótlega eftir að hún byrjaði. Á sunnudaginn
gerði ég svo aðra tilraun til að sjá mynd nr 2 en þá var
seinni diskurinn e-ð ekki alveg í lagi þannig að það var ekki
hægt. Þá fór ég bara að baka skúffuköku og e-ð. Svo var ég
bara að horfa á tv og fór svo bara frekar snemma að sofa á
sunnudagskvöldið. Svo eru nú páskarnir bara rétt að koma,
þetta líður ekkert smá hratt. Það verða komin jól áður en
maður veit af. Annars hef ég verið á fullu í sölumennskunni
undanfarið, er að selja sona lopapeysur með rennilás og húfu
á fleygja, maður er farinn að taka að sér alls konar verkefni
sko en jæja er að hugsa um að klára hérna og fara svo heim
enda kl rétt að smella í 16.30
»
14.03.2006 09:00:07 / heida86
Jú enn ein
helgin búin. Þessi helgi var nú frekar róleg. Á laugardaginn
fórum ég og Anna í búðir og svo um kvöldið var ég bara að
horfa á stevie. Svo á sunnudaginn þá fór ég nú bara að þrífa
íbúðina og svo langaði mig svo að gera e-ð, nennti ekki að
hanga heima þannig að ég hringdi í Önnu og við skelltum okkur
svo í sund. Svo eftir það var nú bara pöntuð pizza og litað
hár og sona. Svo í gær þá var mér svo kalt, ég sat hérna inni
í úlpunni, fólk hefur örugglega haldið að ég væri bara að
bíða eftir að komast heim eða e-ð. Svo var mér ennþá sona
kalt þegar ég kom heim, ég setti peysuna mína á ofninn til að
hlýja hana og fór svo út og setti miðstöðina í botn á bílnum
og mér var nú orðið soldið heitt þegar ég kom á leiðarenda.
Svo kom ég heim bara sona um hálf 10 og var farin að sofa kl
10. Sem sagt mjög rólegt, ætli það verði ekki e-ð svipað í
dag. En ég hef sona verið að skoða fatnað fólks sem ég rekst
á sona út á götu og ég sá eitt í gær sem ég myndi aldrei
ganga í, ekki einu sinni þó mér væri borgað fyrir það en
þetta voru sona glansbútasaumsleggings eða e-ð svoleiðis í
mjög svo skrautlegum litum og svo var viðkomandi í álíka
flottum skóm og jakka en já sona er smekkur manna
mismunandi, henni hefur ábyggilega fundist þetta mjög
flott. Ég er að hugsa um að fara að skrifa bók eða finna e-ð
annað sem ég get dundað mér við þegar það er lítið að gera í
vinnunni, því það var ekkert að gera í gær og það er voða
rólegt núna en það á kannski eftir að breytast sona þegar
fólk fer að vakna. En eins og venjulega þá fór ég nú með
strætó í morgun og þegar ég var að setjast þá er hann að fara
af stað og ég dett sona í sætið eiginlega, soldið asnalegt og
ég var með vatnsflöskuna mína í töskunni og ég ýti á hana
þannig að hún opnast og sprautaði sona líka flott yfir
gluggann og "vegginn" í strætó, ég var sem betur fer fremst
og ég held að það hafi bara enginn tekið eftir þessu

»
07.03.2006 19:08:20 / heida86
Jæja er
ekki fínt að hafa þetta sona vikulegt eða svo að skrifa e-ð
hérna inn. Það sem hefur sona gert þessa seinustu viku er að
seinasta þriðjudag komu Sara, Ingveldur, Anna og Linda í mat
og það var mjög gaman. Svo kíkti ég í sund með Önnu á
fimmtudaginn. Svo á laugardaginn var Visa þing og ég fór
þangað, fórum með rútu kl 9 um morguninn uppí skíðaskálann í
hveradölum og þar var morgunmatur og svo hélt
framkvæmdarstjórinn smá ræðu og svo var Þorsteinn J með
einhvern fyrirlestur og ég var svo þreytt að ég var alveg að
sofna, hefði skammast mín geggjað ef það hefði gerst en það
slapp allt Svo fengum við öll spjöld með nöfnunum okkar og
svo mismunandi lituðum límmiða, sona eins og á ættarmóti. Svo
í hádeginu þá átti maður að setjast í sinn hóp og það var
enginn úr sömu deild saman í hóp, ég lenti með 7 öðrum,
framkvæmdarstjóranum, 27 ára grínista og fl, þetta var mjög
fínn hópur. Svo eftir hádegismat og þegar fólk var búið að
leggja sig og sona þá fórum við að byggja úr legókubbum, búa
til búninga og gera einhvern gjörning, þetta var mjög gaman
og soldið fyndið. Svo fórum við út í einhverja leiki og svo
var farið aftur með rútunni í bæinn og fengið sér smá bjór og
farið í sund, ég fór reyndar ekki í sund, fór bara heim með
draslið og sona, nennti ekki að vera með það með mér allt
kvöldið. Svo fórum við útí viðey að borða og það var algjör
snilld Svo fór ég og hitti Lindu, Sigríði, Önnu og
Villa. Villi skutlaði okkur á Nasa þar sem Wig wam var að
spila, þeir voru alveg ágætir þó maður hafi nú reyndar ekki
þekkt helminginn af þessum lögum sem þeir voru að spila. En
svo kíktum við á hressó en þá var ég bara orðin svo þreytt að
ég var alveg dottin úr öllu stuði, við fórum svo bara
fljótlega heim. Svo fór ég á sunnudaginn í búðir að versla
föt á bróðir minn, það gekk nú alveg ágætlega bara, náðum að
finna e-ð. Svo ætlaði ég nú að vera alveg ótrúlega öflug og
þrífa heima hjá mér þegar hann var farinn en ég var svo
geggjað þreytt að ég bara gat það ekki og fór bara að sofa
snemma...minnir mig Svo dreif ég nú í því að þrífa
þegar ég kom heim úr vinnunni í gær og prófaði nýju ryksuguna
sem ég keypti mér um daginn og hún virkaði sona líka ótrúlega
vel og ryksugupokarnir sem ég á duga örugglega lengur en
ryksugan sjálf. Þetta var ekkert neitt einhver dýrasta
ryksugan þarna og konan benti mér nú á að það fylgdu ekki
ryksugupokar með þannig að ég keypti pakka af þeim sem
innihélt 5 stk og svo þegar ég opnaði kassann með ryksugunni
þá voru þar 3 pokar þannig að þeir duga ábyggilega þónokkuð
lengi, vá ég er búin að skrifa núna nokkrar línur um ryksugu
en já já það er ágætt Svo er ég nú að bíða bara núna eftir
að það komi einhver frá hive og tengi e-ð adsl sem ég á víst
að fá frítt í mánuð, ekki slæmt sko, svo er ég nú bara að
velta fyrir mér hvað ég á að fá mér í kvöldmatinn, líklega
enda bara á því sama og venjulega...abmjólk og múslí. En ég
fór nú og pantaði mér nýjan mussugalla áðan Er búin að
vera að kaupa soldið mikið núna undanfarið, pantaði í gær
cintamani peysu og líka jakka úr h&m og sona en það er
allt í lagi sona smá, svo bara borðar maður hafragraut og
sona til að spara. En já ég var víst klukkuð...tvisvar þannig
að maður ætti kannski að svara þessu.
4
störf sem ég hef unnið um ævina:
1.Upplýsingamiðstöðin í Varmahlíð
2.Leikskólinn Furukot
3.KB
banki Varmahlíð
4.Visa
4 bíómyndir sem ég
get horft á aftur og aftur:
1.
ehh..má ég hafa friends hér 
2.
Ice Age
3.The whole nine yards
4.Robin Hood - Men in tights
4 staðir sem ég hef
búið á:
1.Akureyri
2.Mývatnssveit
3.Varmahlíð
4.Reykjavík
4 sjónvarpsþættir
sem mér líkar:
1.Friends
2.ER
3.Grey´s anatomy
4.
The war at home
4 síður sem ég
skoða daglega
1.mbl.is
2.innra netið í vinnunni
3.bloggsíður
4.
Póstinn minn
4 staðir sem ég
hef heimsótt í fríum:
1.Benidorm
2.Glasgow
3.Köben
4...og svo fullt af stöðum hérna á Íslandi
Heyrðu
ég held að þetta sé orðið alveg ótrúlega öflugt hérna hjá mér og
kallinn eða konan sem átti að koma frá hive á milli 6 og 7 er ekki
enn kominn, nenni nú ekki að bíða eftir þeim lengi sko en já ég er
að hugsa um að klukka ekki neinn, held að það séu nú flestir búnir
að lenda í þessu þannig að ég bara ætla ekki að klukka neinn

»
28.02.2006 08:49:16 / heida86
Þegar
flugurnar eru farnar að pirra mann í febrúar þá er maður nú
farinn að athuga hvort maður sé ekki alveg örugglega á
Íslandi. En sem sagt er ekki langt síðan að ég fékk
meðleigjanda en það var fluga sem gerði voða lítið annað en
að fljúga í kringum hausinn á mér og ég var orðin frekar
pirruð á því þannig að hún flutti út. En það er nú engan
veginn eins og það sé febrúar, í gær var sól og logn, reyndar
ekki alveg 20 stiga hiti en samt mjög gott veður og núna er
heiðskýrt og bara mjög fínt veður. En í gær þá fór ég nú í
kringluna og var að versla í bónus og sona alveg slatta og
fór svo bara með þetta í strætó og rölti svo með þetta heim
úr strætó og núna er ég með strengi í annarri öxlinni,
þvílíkur aumingi sem maður er að geta ekki haldið á
einhverjum poka En auðvitað gleymdi ég nú að kaupa e-ð
þegar ég fór í búðina og þurfti að fara aftur í búð um
kvöldið og ætlaði að kaupa einn hlut, svo mundi ég nú eftir
ýmsu sem vantaði og fór út með fullan poka af dóti en gleymdi
samt alla vega tveimur hlutum Í gær ætlaði ég að vera svo
dugleg og fara ótrúlega snemma að sofa en þegar klukkan var
að verða 2 sá ég að það myndi ekki ganga þannig að ég er ekki
frá því að það sé pínu þreyta í manni í dag, væri fínt að
fara bara aðeins fram í sófa og leggja sig Þegar himininn
er sona rauður og svo appelsínugulur, gulur, blágrænn og svo
blár þá minnir það mig á morgunsjónvarpið sem maður horfði
stundum á þegar maður var lítill, þá komu alltaf þessi litir
í akkúrat þessari röð í kynningunni, já þetta man maður ennþá
En svo fór ég norður um seinustu helgi og það var alveg
ótrúlega fínt að kíkja aðeins þangað. Á laugardaginn kom
fullt af fólki í heimsókn og svo fór ég með önnu, söru og
sigríði út á laugardagskvöldið og það var bara mjög fínt. Svo
brá mér nú pínu þegar ég vaknaði á sunnudaginn og leit á
klukkuna, hún var orðin 2, ég hef ekki getað sofið sona lengi
síðan í jólafríinu og það var alveg ótrúlega gott Svo var
ég bara e-ð í rólegheitum þangað til ég fór í flug en það var
svo mikil þoka í rvk að fluginu seinkaði alveg um nærri
klukkutíma, það var ekki gaman sko að hanga og bíða eftir að
komast af stað en svo komu Linda og Jóhannes að sækja mig og
skutluðu mér heim Það er bara brjálaður hasar hérna fyrir
utan, maður hefur bara ekki tíma til að vera að skrifa hérna
eða vinna. Það kom allt í einu lögga og sjúkrabíll og
stoppaði hérna fyrir neðan og fóru hérna inní eitt hús og
maður er sona að reyna að fylgjast með hvað er í gangi þarna,
það er alveg ótrúlegt hvað maður er forvitinn, ef maður
heyrir í sírenum þá er maður kominn útí glugga um leið En
jæja, maður ætti kannski að fara að vinna...eða halda áfram
að horfa út um gluggann 
»
20.02.2006 08:40:00 / heida86
Þetta með
hana Sylvíu Nótt virðist ekki ætla að enda, kallinn þarna sem
kærði um daginn, hann Kristján, hann ætlar sko ekki að gefast
upp og ætlar að halda áfram að tuða af því að hann var ekki
með nógu góð lög til að komast áfram og hann bara sættir sig
ekki við það. Núna ætlar hann bara að beita hörku og halda
áfram að nöldra, getur maðurinn ekki bara sætt sig við það að
Sylvía á að fara út En þetta var nú algjör snilld hjá
henni að rústa þessu sona þarna á laugardaginn, enda bjóst
maður svo sem ekki við öðru en að hún færi áfram en kannski
ekki með svona miklum yfirburðum En eftir vinnu á
föstudaginn fór ég bara heim að baka og þrífa og svo
kom Áróra til mín á föstudagskvöldið og við horfðum nú
bara á tv og sona þá, svo á laugardaginn fórum við nú í
búðir, kíktum í kolaportið, kringluna og smáralind. Svo fórum
við heim og ákváðum að leggja okkur aðeins og vöknuðum
passlega til að horfa á eurovision. Svo vorum við bara að
horfa á tv og fórum svo aðeins út á rúntinn. Svo á
sunnudaginn fórum við í ljós og svo aftur aðeins í búðir
þangað til að hún fór heim um 4. Ég er nú bara búin að ná að
eyða soldið mikið síðustu daga, það er búið að vera soldið
gaman En svo fór ég nú bara og þvoði bílinn minn og
skellti smá lofti í dekkin. Svo var svo geggjað gott veður að
ég ákvað að fara aðeins út að skokka. Svo gerði ég nú bara
voða lítið í gærkvöldi fyrir utan kannski að ganga frá þvotti
og þvo eina vél sem tók nú soldinn tíma. Vélin er yfirleitt
tæpan klukkutíma að þvo og ég setti hana í gang kl 8, svo kl
hálf 10 þá fattaði ég allt í einu að vélin var ekki einu
sinni byrjuð að vinda og þá fór ég nú að athuga málið og
skoðaði alla takkana hvort þeir væru ekki rétt stilltir og
þeir voru allir eins og þeir áttu að vera og þá allt í einu
fattaði ég hvað var að, það var skrúfað fyrir vatnið Buin
að þvo í einn og hálfan tíma með engu vatni, meira klúðrið en
ég skrúfaði nú bara frá og leyfði vélinni að klára sem tókst
á endanum. Svo er bara kominn mánudagur aftur og ég er mætt í
vinnuna. Pabbi hringdi í gær og spurði hvort mig langaði ekki
að koma með sér á einhverja tónleika á fimmtudagskvöldið og
ég var nú svo sem alveg til í það þannig að ég fór á netið og
reddaði miðum á tónleikana fyrir okkur. Annars er ekki mikið
planað fram að þeim tíma nema bara vinna og e-ð, jú og fara á
einhvern fund hjá einhverjum landsbankakalli í dag, veit nú
ekki hvað ég er að láta draga mig útí hérna en það kemur í
ljós.
»
13.02.2006 13:11:01 / heida86
Það er bara
alveg ótrúlega gott veður úti, væri alveg til í að vera bara
úti í dag En ég mætti í vinnuna bara sona á venjulegum
tíma, reyndar aðeins seinna en venjulega þar sem
strætóbílstjórinn kunni ekki að skipta um gír og keyrði því
ekki mjög hratt en það var nú allt í góðu. Svo var ég bara
e-ð að vinna og þurfti svo að fara útí apótek og rölti þangað
en það var nú alveg í hinum endanum á laugaveginum og þegar
ég kom þangað þá var ekki opnað fyrr en 10 og kl var 20 mín í
10 þannig að ég rölti bara til baka og þegar ég kom upp benti
Maja mér á að það væri apótek uppí domus medica þannig að ég
fór þangað og þar var opið, þannig að ég er aðeins búin að fá
að vera úti í dag. En það var nú bara alveg ótrúlega rólegt
hjá mér um helgina. Í gær þá horfði ég held ég allt of mikið
á tv, svo var mér nú bent á að í gærkvöldi að ég átti
nintendo tölvu en ég hafði náttúrulega steingleymt því, hefði
nú verið fínt að muna eftir því í gær. Ég keypti mér slatta
um helgina fyrir peninginn sem frúin í hamborg gaf mér og er
að hugsa um að kaupa pínu meira í dag en ég veit það samt
ekki, kannski maður eigi að spara smá
»
11.02.2006 18:55:45 / heida86
Hverjir í
ósköpunum eru þessir 108 sem eru búnir að koma hingað á
síðuna í dag? En já ég vaknaði kl hálf 10 í morgun og bara
gat engan veginn sofið lengur, ég held ég sé hætt að geta
sofið út En ég ákvað að fara með sængina inní stofu og ath
hvort ég gæti ekki sofnað yfir tv eða e-ð en það tókst nú
ekki, þannig að ég horfði bara á video og fékk mér að borða
og las Blaðið og fréttablaðið og e-ð. Fór svo bara að þvo og
e-ð. Nennti svo ekki að vera hangandi heima svo ég fór og
kíkti til Lindu sem var að vinna og svo fór ég bara í
kringluna og H&M og aðeins í smáralind og í bónus og fór
svo að taka bensín og svo kom ég nú bara heim og er svo bara
núna að horfa á Fraiser og e-ð, alveg ótrúlega gaman sko. Er
svo sona að velta fyrir mér hvað ég á að fá mér í matinn,
hvort það eigi að vera Subway, pizza, pasta, taco eða pita
eða e-ð, veit ekki alveg sko Ætli það verði ekki
bara pasta eða e-ð, nenni ekki út að kaupa e-ð og nenni
heldur ekki að borða hakk í marga daga þannig að pasta er
held ég besta leiðin En þegar manni er farið að leiðast
það mikið að manni langar að fara að læra e-ð eða gera e-ð
alveg fáránlegt þá myndi ég halda að ástandið væri orðið
slæmt, í morgun þá nennti ég ekki að horfa á video og langaði
að fara að skrifa e-ð, úff maður er bara held ég ekki alveg í
lagi En ég fór svo í húsasmiðjuna líka áðan og keypti mér
sona ofnlykil en ég veit nú ekkert hvort þetta virkaði hjá
mér þarna áðan þegar ég var að reyna að laga ofninn, held það
hafi nú verið e-ð minna af lofti í honum en það kemur bara í
ljós Mig langar ótrúlega að læra táknmál, færeysku og
kínversku þannig að ef þið kunnið e-ð í þessu þá megiði alveg
kenna mér
»
10.02.2006 19:30:19 / heida86
Þá er bara
komið helgarfrí sem er fínt. Ég ætlaði að fara áðan og kaupa
sona ofnlykil til að laga ofninn inni hjá mér en kom svo
seint heim að ég verð bara að fara í það á morgun, það verður
bara pínu kalt hjá mér eina nótt enn. Hef sona verið að velta
fyrir mér hvað ég eigi að fá mér í kvöldmatinn, held að það
sé að koma niðurstaða á það þannig að kannski maður fari í
það, soldið langt síðan hádegismaturinn var. Það er nú ekki
mikið búið að gerast hjá mér í dag, fékk samt fína gjöf áðan,
kom sér mjög vel Svo er það bara spurning hvernig helgin
verður, þarf alla vega að fara í búð á morgun og kaupa þennan
ofnlykil, svo ætti maður kannski að gera e-ð úr þessum eggjum
áður en þau fara að fjölga sér sjálf, neinei ástandið er nú
ekki svo slæmt. Svo var ég á fundi áðan og það var verið að
segja aðeins frá árshátíðinni sem á víst að vera í london í
haust og maður þarf að fara að skrá sig strax, veit ekki
alveg hvað ég á að gera sko, þarf aðeins að skoða þetta
betur, ég sem er ábyggilega með óákveðnustu manneskjum á ekki
eftir að geta ákveðið þetta fyrir 22. febrúar, svo er
ýmislegt sem spilar þarna inní sem ekkert er hægt að segja
til um núna ég er að hugsa um að fara að fá mér e-ð að
borða og kíkja á tv eða e-ð 
»
09.02.2006 09:55:12 / heida86
Mér finnst
vikan bara búin að líða ótrúlega fljótt, það er bara kominn
fimmtudagur. Enda hefur maður alveg haft e-ð að gera þannig
að þá líður tíminn fljótt. Ég og Anna skelltum okkur í bíó í
gær á Memoirs of Geisha og hún var miklu betri en ég bjóst
við, samt frekar löng, ca 2 og hálfur tími. En svo býst ég
við að verða bara heima í kvöld, er að hugsa um að þrífa og
reyna að laga ofninn inní herbergi og sona ýmislegt þannig að
þessi dagur verður líklega fljótur að líða, reyndar ekki ef
þetta heldur sona áfram því ég hef ekkert að gera núna, er
búin að skoða fullt af myndböndum á kvikmynd.is og fara inn á
flestar þær síður sem mér dettur í hug og búin að horfa líka
soldið mikið út um gluggann á ekki neitt Kannski ég fari
bara og kíki á útsöluna í Vero Moda eða e-ð svo maður hafi nú
e-ð að gera. Ég skil samt ekki hvað fólk er að gera með
jólaskrautið ennþá uppi, það er kominn 9. febrúar, alveg
kominn tími á að taka þetta niður Ég ætti kannski bara að
fara í það að labba á milli húsa og taka niður jólaskraut hjá
þeim sem hafa ekki enn nennt að kippa úr sambandi og taka
þetta niður Ég gæti líka farið og hjálpað
bílastæðavörðunum að sekta bíla, það gæti verið gaman. Núna
kl 9.44 slökknuðu götuljósin hérna í borginni, það er sem
sagt að bjart eldsnemma bara, alveg að koma sumar eða sona
næstum því Ég heyrði soldið sérstakt nafn á manni um
daginn en hann hét Röðull, ekki myndi ég nú vilja heita það
en það eru alveg ótrúlegustu nöfn sem eru til og getur verið
soldið gaman að skoða mannanafnaskrá því þar finnast
ótrúlegustu nöfn. En það á sem betur fer að fara að hlýna
hérna á þessu landi, það er búið að vera svo geggjað kalt,
þegar ég kom heim í gær þá var ég í úlpunni smá stund inni og
fór svo bara undir sæng en var samt alltaf kalt, svo er
ofninn e-ð bilaður inní herbergi og það var ískalt þar og ég
setti sængina á ofninn inní stofu áður en ég fór inní
herbergi að sofa, það var mjög gott, annars hefði ég
örugglega vaknað með kalið nef 
Það er byrjað að snjóa, kannski ég fari bara eftir smá stund og
sópi af stéttunum hjá búðarfólkinu hérna á laugarveginum, ég er
alveg með fullt af hugmyndum til að gera en efast um að ég geri nú
neitt af þessu núna nema kannski kíkja á útsöluna á eftir þegar ég
nenni út Jæja ég veit ekki alveg hvað ég á að segja ykkur meira,
þetta gæti farið að fara útí meira rugl ef ég held áfram svo ég
held ég hætti bara áður en það fer útí það en ef mér leiðist mjög á
eftir þá er aldrei að vita hvað mér dettur í hug að
gera.
»
07.02.2006 09:57:27 / heida86
»
01.02.2006 13:09:01 / heida86
Það getur
verið soldið gaman að velta fyrir sér öllu fólkinu sem er
til, td í strætó eða bara útum gluggann í vinnunni eða e-ð,
það er til alveg alls konar fólk og bara gaman að því sko. En
já leikurinn í gær var bara skemmtilegur, reyndar á soldið
leiðinlegum tíma en við kveiktum bara á útvarpinu hér, voða
stemma yfir þessu, búið að poppa útum alla hæð og tengja e-ð
sjónvarp frammi í þjónustuveri og við hlupum öðru hverju
þangað og svo var kominn alveg hellingur af fólki þarna tila
ð horfa á seinustu mínúturnar og allir að missa sig yfir
þessu, það var soldið fyndið En svo er bara að drífa sig
heim í dag og horfa á leikinn sem er kl 16.55, vonandi ná
þeir að vinna líka í dag. En í gær þegar ég kom heim þá fór
ég nú bara að þrífa og þvo þvott, svo skaust ég útí búð, fór
td í búð sem heitir "Þín verslun" og það var svo vond lykt
þar inni að ég hef bara ekki kynnst öðru eins, það hefur
ábyggilega verið e-ð farið að mygla þarna eða e-ð, ég veit
ekki hvað það var eiginlega en ég stoppaði ekki lengi þar.
Svo fór ég bara heim og bakaði smá og svo horfði ég nú bara á
tv og e-ð og fór svo bara að sofa. Svo er allt óráðið í dag
að leik loknum, ætli það verði ekki bara tv og e-ð og kannski
maður malli e-ð. Svo þarf nú að klára þessa köku á morgun sem
ég byrjaði á í gær og kannski baka einhverja aðra með, er svo
að hugsa um að fara með þetta í vinnuna á föstudaginn, þeim
langar svo voðalega mikið í kökur alltaf 
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|